Svifill

Auk úrhleypikerfisins höfum við þróað svifil / snúningstengi utan á flelgur. Við bjóðum bæði upp á svifilinn sjálfan sem og festingar á nokkrar mismunandi gerðir af felgum. Einnig er hægt að sérsmíða festingar.

Líkt og úrhleypikerfið hefur svifillinn þróast og styrkst í gegnum árin. Í nýjustu útfærslunni er komin tvöföld þétting, sem eykur endingu enn frekar.

Einnig er hægt að kaupa legur og þéttingar til að gera svifilinn upp.

Svifilinn má meðal annars finna í vefverslun Drif og frekari upplýsingar er hægt að fá hjá info@pump.is.

Festingar á felgur

Erum með festingar á nokkrar gerðir af felgum. Þær eru renndar úr sama efni og svifillinn og festast í felgumiðjuna.

Eigum meðal annars til festingar í Arctic Trucks 17" felgur (10", 12", 14"), og orginal felgur undir Raptor, Defender og Wrangler. Einnig er hægt að sérsmíða festingar.